Fotbolti.net
19.07.26 - 18:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rooney elskar að horfa á Yamal - „Hann er næstur í röðinni"

Yamal hitar upp fyrir úrslitaleikinn

Yamal hitar upp fyrir úrslitaleikinn

Canon

Mynd: EPA

Það styttist í úrslitaleikinn á HM milli Spánar og Argentínu. Þar mætast hinn 19 ára gamli Lamine Yamal og hinn 39 ára gamli Lionel Messi.

Messi er einn besti leikmaður sögunnar og hefur átt stórkostlegt mót. Yamal er einn af bestu leikmönnum heims í dag. Wayne Rooney, sérfræðingur á BBC, er mjög hrifinn af Spánverjanum unga.
„Lamine Yamal er algjör ofurstjarna. Ég elska að horfa á hann. Stærsta hrósið sem ég get hefið honum er að hver einasti leikmaður Spánar vill senda boltann á hann við hvert tækifæri," sagði Rooney.

„Liðsfélagarnir hans hafa trú á honum og hann hefur trú á sjálfum sér. Við tölum um Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, topp leikmenn sem hafa verið á hæsta stiginu í langan tíma, Yamal er næstur í röðinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.