Fotbolti.net
19.07.26 - 13:19
Brynjar Ingi Erluson

Neyðist til að taka í höndina á Trump - „Vil ekki enda í fangelsi“

Donald Trump

Donald Trump

Canon

Mynd: EPA

Spænski framherjinn Borja Iglesias segir að hann muni neyðast til þess að taka í höndina á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eftir úrslitaleikinn gegn Argentínu í kvöld.
Iglesias hefur reglulega látið pólitískar og samfélagslegar skoðanir sínar í ljós. Hann hefur meðal annars sýnt Palestínu stuðning, lakkað neglurnar svartar til stuðnings Black Lives Matter-hreyfingunni og talað gegn hómófóbíu. Iglesias er vinstrisinnaður og þekktur félagsmálasinni.

Hann studdi einnig Jenni Hermoso, leikmann spænska kvennalandsliðsins, eftir að Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska fótboltasambandsins, kyssti hana eftir úrslitaleik HM árið 2023. Rubiales var síðar dæmdur fyrir kynferðislegt ofbeldi.

Iglesias var spurður í viðtali við Panenka hvort hann ætlaði að taka í höndina á Donald Trump og játaði því.

„Já, en aðeins vegna þess að ég vil ekki enda í fangelsi. Þetta er eitthvað sem ég hef hugsað um og jafnvel séð fyrir mér.“

„Ég vona að allir verði ánægðir þegar ég tek í höndina á honum og að þessu verði lokið sem fyrst svo ég geti gleymt því. Stundum þarf maður einfaldlega að gleyma ákveðnum augnablikum sem maður upplifir,“ sagði Iglesias.

Hann segist ekki vilja skapa fjaðrafok í kringum úrslitaleikinn.

„Fólk veit hvaða skoðanir ég hef og ég væri til í að gera ýmislegt. Raunveruleikinn er hins vegar sá að þó fólk haldi að ég hafi einhver völd, þá hef ég þau ekki til að takast á við ákveðna hluti. Þetta er mjög flókið,“ sagði Iglesias.

Borja er 33 ára gamall og á mála hjá Celta Vigo í heimalandinu. Hann hefur komið við sögu í einum leik á heimsmeistaramótinu er hann kom inn á í sigrinum á Portúgal í 16-liða úrslitum.
Borja Iglesias

Borja Iglesias

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.