Fotbolti.net
19.08.13 - 17:50
Elvar Geir Magnússon

Scott Parker í Fulham (Staðfest)

Scott Parker í Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur gengið frá kaupum á Scott Parker frá Tottenham en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 32 ára miðjumaður skrifaði undir þriggja ára samning.

Hann er áttundi leikmaðurinn sem Fulham fær til sín í sumar en Tottenham gat ekki lofað honum miklum spiltíma eftir að hafa styrkt lið sitt mikiðþ
„Hann er miðjumaður sem vinnur hörðum höndum fyrir liðið og er frábær leikmaður, bæði með og án bolta,\" segir knattspyrnustjóri Fulham, Martin Jol.

Parker hefur spilað fyrir Charlton, Chelsea, Newcastle og West Ham auk Tottenham. Hann á 18 A-landsleiki að baki fyrir England.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.