Fotbolti.net
19.08.14 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Marko Marin lánaður frá Chelsea tll Fiorentina (Staðfest)

Marko Marin lánaður frá Chelsea tll Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur lánað þýska leikmanninn Marko Marin til ítalska félagsins Fiorentina út tímabilið en enska félagið staðfesti þetta í gær.
Marin gekk til liðs við Chelsea árið 2012 en náði ekki að brjóta sér lið inn í byrjunarliðið og spilaði einungis 16 leiki á sínu fyrsta tímabili.

Hann var lánaður til Sevilla á síðustu leiktíð og lék þar 28 leiki í öllum keppnum og varð meðal annars Evrópumeistari félagsliða.

Hann mun nú leika með Fiorentina á komandi tímabili en Vincenzo Montella, þjálfari Fiorentina hefur þó staðfest að Juan Cuadrado komi til með að vera áfram hjá Fiorentina og að þessi lánssamningur ýti ekki undir það að kólumbíski leikmaðurinn sé á leið frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.