19.08.14 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Tiago Ilori lánaður frá Liverpool til Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Liverpool

Mynd: Liverpool
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur lánað portúgalska varnarmanninn Tiago Ilori til franska úrvalsdeildarfélagsins Bordeaux út tímabilið.
Ilori, sem er 21 árs gamall varnarmaður, gekk til liðs við Liverpool frá Sporting Lisbon fyrir ári síðan en hann var lánaður til Granada í janúar þar sem hann spilaði níu leiki fyrir spænska félagið.
Borussia Dortmund hafði áhuga á að fá Ilori á láni í sumar en hann ákvað þó að semja við Bordeaux á endanum.
Hann verður hjá félaginu út leiktíðina en félagið er í öðru sæti eftir að hafa farið illa með AS Monaco um helgina, 4-1.