Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. ágúst 2019 12:25
Magnús Már Einarsson
Myndir: Leifur Andri spilaði með vígalegt glóðarauga
Leifur í leiknum í gær.
Leifur í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, fékk högg í 4-1 sigri liðsins á KR um þarsíðustu helgi með þeim afleiðingum að hann fékk risastórt glóðarauga.

Sjá einnig:
Leifur Andri með rosalegt glóðarauga

Leifur Andri gat ekki opnað augað daginn eftir leik en hann náði að jafna sig fyrir leikinn gegn Grindavík í gær.

Glóðaraugað er þó ennþá myndarlegt eins og sjá má á myndunum í þessari frétt.

Í gær spilaði Leifur í stöðu vinstri bakvarðar en ekki í miðverði líkt og hingað til á tímabilinu. Leifur var að fylla skarð Harðar Árnasonar sem var í brúðkaupi erlendis.
Athugasemdir
banner
banner