19.08.20 - 09:35
Elvar Geir Magnússon
Koeman nýr þjálfari Barcelona (Staðfest)

Ronald Koeman á flugvellinum í Barcelona.

Mynd: Getty Images

Barcelona og Ronald Koeman hafa náð samkomulagi um að Hollendingurinn taki við þjálfun liðsins. Samningurinn er til sumarsins 2022.
Í dag verður fréttamannafundur þar sem Koeman verður formlega opinberaður.

Koeman er fyrrum leikmaður Barcelona og varð Evrópumeistari með liðinu. Hann vann fjóra Spánarmeistaratitla í búningnum, þann síðasta 1994.
En nú snýr hann aftur á Nývang sem þjálfari. Hann er með yfir 20 ára reynslu sem stjóri og á átta bikara á ferilskrá sinni í þjálfun.
Hann hefur þjálfað í ensku úrvalsdeildinni, La Liga, Hollandi, Portúgal og lætur nú af störfum sem landsliðsþjálfari Hollands.
Þjálfaraferill Koeman hófst hjá Barcelona. Hann var í þjálfarateymi aðalliðsins og stýrði svo varaliðinu tímabilið 1998-99.
Koeman bíður erfitt verkefni hjá Barcelona. Liðið féll úr leik í Meistaradeildinni með skömm eftir 8-2 tap gegn Bayern München og horfði á Real Madrid vinna Spánarmeistaratitilinn. Liðið þarf á endurnýjun að halda og bak við tjöldin hefur verið ólga. Þetta var fyrsta tímabilið síðan 2007-08 sem er titlalaust hjá félaginu.

🙌 Welcome home, @RonaldKoeman!
— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 19, 2020
💙❤️ #KoemanCuler

Mynd: Getty Images