19.08.20 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lavelle og Mewis búnar að skrifa undir hjá Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bandaríska landsliðskonan Rose Lavelle er gengin í raðir Manchester City eftir fjögur ár í efstu deild bandaríska boltans.
Lavelle er 25 ára gömul og vann HM með bandaríska landsliðinu í fyrra. Hún leikur á miðjunni en hefur þrátt fyrir það gert 12 mörk í 45 A-landsleikjum.
Hún fetar í fótspor vinkonu sinnar Sam Mewis sem varð einnig heimsmeistari með Bandaríkjunum fyrra. Mewis gekk í raðir City fyrr í ágúst og verður áhugavert að sjá hvernig þær munu bæta gífurlega sterkan leikmannahóp félagsins.
Mewis er einnig miðjumaður. Hún er 27 ára gömul og hefur skorað 18 mörk í 67 landsleikjum. Undanfarin þrjú ár hefur hún verið lykilmaður hjá North Carolina Courage í heimalandinu.
City endaði í öðru sæti efstu deildar á síðustu leiktíð þrátt fyrir að vera með flest stig. Chelsea fékk Englandsmeistaratitilinn afhentan þrátt fyrir að vera einu stigi á eftir, þar sem þær bláklæddu áttu leik til góða þegar tímabilið var flautað af vegna Covid-19.
Man City, Chelsea og Arsenal hafa verið bestu lið deildarinnar síðustu fimm ár.
„Ég er mjög spennt fyrir að ganga í raðir Manchcester City. Ég hlakka til að spila í enska boltanum og get ekki beðið eftir að spila í Meistaradeildinni," sagði Lavelle.