19.08.20 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ragnar Már í Kára (Staðfest)

Ragnar Már til hægri á myndinni.

Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla

Ragnar Már til hægri á myndinni.

Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla
Kári frá Akranesi hefur fengið Ragnar Má Lárusson í sínar raðir frá Aftureldingu.
Ragnar, sem er 23 ára gamall kantmaður, er uppalinn á Skaganum. Hann fór ungur til enska úrvalsdeildarfélagsins Brighton en sneri aftur til Íslands 2015.
Hann hefur spilað síðustu þrjú sumur með Kára í 2. deildinni og ætlar að klára tímabilið þar.
Ragnar spilaði einn leik með Aftureldingu í sumar og skoraði í þeim leik sem var gegn Magna.
Hann hefur spilað síðustu þrjú sumur með Kára í 2. deildinni og ætlar að klára tímabilið þar.
Ragnar spilaði einn leik með Aftureldingu í sumar og skoraði í þeim leik sem var gegn Magna.
SKÚBB! Ragnar Már Lárusson er á leið aftur heim á Skagann og mun klára tímabilið með @KariAkranes. Mun vonandi spila stórt hlutverk í liði Káramanna #ástríðan #fotboltinet
— Ástríðan Podcast (@AstriPodcast) August 11, 2020
