19.08.20 - 20:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramsdale nýr markvörður Sheffield United (Staðfest)

Aaron Ramsdale.

Mynd: Getty Images

Aaron Ramsdale.

Mynd: Getty Images
Sheffield United, spútniklið ensku úrvalsdeildarinnar, á síðustu leiktíð hefur fengið sér nýjan markvörð fyrir næstkomandi leiktíð.
Félagið hefur fest kaup á Aaron Ramsdale sem kemur frá Bournemouth, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 22 ára gamli Ramsdale var áður fyrr á mála hjá Sheffield United, en hann yfirgaf félagið og fór til Bournemouth fyrir 1 milljón punda í janúar 2017. Hann átti flott tímabil sem aðalmarkvörður Bournemouth 2019/20 þrátt fyrir félagið hafi fallið úr deild þeirra bestu. Hann var valinn leikmaður ársins hjá Bournemouth.
Sheffield United borgar fyrir hann 18,5 milljónir punda og skrifar hann undir fjögurra ára samning.
Hann kemur í staðinn fyrir Dean Henderson, sem hefur verið í láni frá Manchester United undanfarin tvö tímabil. Það er spurning hvað tekur við hjá Henderson, hvort hann verði áfram hjá Man Utd og veiti David de Gea samkeppni eða fari aftur á láni.
Sjá einnig:
Henderson ekki áfram hjá Sheffield - Spenntur fyrir næsta kafla