19.08.20 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reinier til Dortmund frá Real Madrid (Staðfest)

Mættur til Dortmund.

Mynd: Getty Images

Mættur til Dortmund.

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Borussia Dortmund hefur styrkt sig fyrir átökin sem framundan eru á komandi tímabili í þýsku úrvalsdeildinni.
Félagið hefur náð samkomulagi við spænska stórveldið Real Madrid um tveggja ára lánssamning á Brasilíumanninum Reinier.
Reinier er 18 ára gamall og kom hann til Real Madrid frá Flamengo í janúar síðastliðnum. Reinier er efnilegur miðjumaður sem hafði verið orðaður við Real Zaragoza, Real Sociedad og Real Valladolid á Spáni, ásamt Bayer Leverkusen í Þýskalandi.
Það var hins vegar Dortmund sem tókst að næla í þennan spennandi leikmann.
„Félagið er þekkt fyrir að einbeita sér að ungum leikmönnum og hjálpa þeim að þróa sinn leik," segir Reinier og það er hárrétt hjá honum. Dortmund er þekkt fyrir það og er Reinier líklega kominn á mjög góðan stað upp á feril sinn að gera.