19.08.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Skipp lánaður til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich er búið að tryggja sér miðjumanninn efnilega Oliver Skipp á lánssamningi út tímabilið.
Skipp verður tvítugur í september og á 23 leiki að baki fyrir aðallið Tottenham, þar af 15 í ensku úrvalsdeildinni.
Skipp, sem skrifaði undir þriggja ára samning við Tottenham í júlí, hefur spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Englands.
„Ég er ánægður með að vera búinn að skrifa undir hjá Norwich. Þetta er félag sem ætlar sér stóra hluti í framtíðinni," sagði Skipp.
Norwich féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og stefnir beint upp aftur.