Fotbolti.net
19.08.20 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

West Brom festir kaup á Pereira (Staðfest)

Pereira skoraði 8 og lagði upp 16 á síðustu leiktíð. Hann var stoðsendingahæsti leikmaður Championship deildarinnar.

Pereira skoraði 8 og lagði upp 16 á síðustu leiktíð. Hann var stoðsendingahæsti leikmaður Championship deildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion er búið að staðfesta kaupin á brasilíska sóknartengiliðnum Matheus Pereira, sem getur helst leikið í holunni fyrir aftan framherja og á hægri kanti.
West Brom borgar 8,25 milljónir punda fyrir Pereira sem kemur frá portúgalska félaginu Sporting.

Pereira var að láni hjá West Brom á síðustu leiktíð og gerði frábæra hluti. Hann festi sig í sessi í byrjunarliðinu og spilaði 42 af 46 deildarleikjum liðsins sem endaði í öðru sæti Championship deildarinnar.

Hann verður því áfram í liði West Brom á næstu leiktíð og getur reynt fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.

Pereira er 24 ára gamall og hefur áður spilað fyrir FC Nürnberg og Chaves að láni. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við WBA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.