Fotbolti.net
19.08.21 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Bamford framlengir við Leeds til 2026 (Staðfest)

Patrick Bamford.

Patrick Bamford.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Patrick Bamford hefur gert nýjan fimm ára samning við Leeds United og er nú samningsbundinn á Elland Road til 2026.

Þessi 27 ára leikmaður hefur leikið 111 leiki fyrir félagið og skorað 43 mörk.
Bamford gekk í raðir Leeds frá Middlesbrough 2018 fyrir um tíu milljónir punda.

Hann skoraði 17 mörk í 38 leikjum á síðasta tímabili, fyrsta tímabili Leeds í efstu deild í sextán ár. Leeds endaði í níunda sæti.

Fyrr í sumar skrifuðu Stuart Dallas og Illan Meslier undir nýja samninga við Leeds.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.