19.08.21 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emerson lánaður til Lyon (Staðfest)

Emerson í leik með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Emerson í leik með Chelsea.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur lánað ítalska vinstri bakvörðinn Emerson Palmieri til franska úrvalsdeildarfélagsins Lyon.
Hinn 27 ára gamli Emerson gekk í raðir Chelsea frá Roma í janúar 2018 fyrir rúmar 17 milljónir punda.
Það er óhætt að segja að hann hafi ekki verið í stóru hlutverki frá vistaskiptum sínum til Lundúna, en hann hefur samt sem áður komið við sögu í 71 leik fyrir Chelsea.
Hann kom inn á sem varamaður í 3-0 sigrinum gegn Crystal Palace um síðustu helgi en er núna farinn á láni.
Chelsea er með Ben Chilwell og Marcos Alonso í stöðu vinstri bakvarðar og sér því enga ástæðu til að halda Emerson hjá félaginu.
Emerson var hluti af landsliði Ítalíu sem vann EM í sumar og byrjaði hann sjálfan úrslitaleikinn gegn Englendingum, sem Ítalía vann í vítaspyrnukeppni.