Fotbolti.net
19.08.21 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Juan Jesus til Napoli (Staðfest)

Juan Jesus til Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Napoli er búið að staðfesta komu brasilíska miðvarðarins Juan Jesus á frjálsri sölu frá Roma.
Jesus er þrítugur miðvörður sem býr yfir mikilli reynslu úr ítalska boltanum. Hann á tæpa 200 leiki að baki í Serie A eftir fimm ár hjá Inter og önnur fimm hjá Roma.

Jesus, sem á fjóra landsleiki að baki fyrir Brasilíu, mun berjast við Kostas Manolas og Amir Rrahmani um byrjunarliðssæti hjá Napoli. Kalidou Koulibaly er fremstur í goggunarröðinni.

Napoli spilar undir stjórn Luciano Spalletti á þessari leiktíð eftir að hafa endað í fimmta sæti í vor undir stjórn Gennaro Gattuso.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.