Fotbolti.net
19.08.21 - 21:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lengjudeildin: Fram upp í efstu deild (Staðfest)

Framarar fara upp!

Framarar fara upp!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fram er komið upp í efstu deild karla á nýjan leik. Þetta varð ljóst eftir sigur liðsins á Selfossi í kvöld.
Alexander Már Þorláksson skoraði strax eftir þrjár mínútur, en það var eina mark fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleiknum bætti bróðir hans, Indriði Áki, við öðru marki áður en Gary Martin minnkaði muninn.

Selfoss hótaði jöfnunarmarki og Fram vildi nokkrum sinnum fá víti áður en flautað var af.

Það virtist stefna í það að kampavínið yrði sett á kæli í Safamýri. Þeir þurftu að treysta á sigur Gróttu gegn Kórdrengjum. Kórdrengir jöfnuðu í 1-1 þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, en svo skoraði Pétur Theódór Árnason fyrir Gróttu á 86. mínútu.

„Mark á Nesinu, Ásgrímur formaður tilkynnir það. Fram á leið upp!" skrifaði Unnar Jóhannsson í beinni textalýsingu.

Það var svo niðurstaðan því Grótta landaði sigrinum gegn Kórdrengjum. Fram spilaði síðast í efstu deild 2014 og núna er félagið loksins komið aftur upp. Þetta sumar hefur verið hreint út sagt stórkostlegt fyrir Framara; liðið er búið að vinna 15 leiki, gera tvö jafntefli og ekki tapa neinum.

Úrslit kvöldsins gera það líka að verkum að ÍBV er í algjörri kjörstöðu til að fara upp með Fram. ÍBV er sjö stigum á undan Kórdrengjum þegar bæði lið eiga sjö leiki eftir.

Grótta 2 - 1 Kórdrengir
1-0 Valtýr Már Michaelsson ('3 )
1-1 Þórir Rafn Þórisson ('80 )
2-1 Pétur Theódór Árnason ('86 )
Lestu um leikinn

Fram 2 - 1 Selfoss
1-0 Alexander Már Þorláksson ('3 )
2-0 Indriði Áki Þorláksson ('55 )
2-1 Gary John Martin ('67 )
Lestu um leikinn

Önnur úrslit:
Lengjudeildin: Fyrsti sigur Grindavíkur í tvo mánuði>
Pétur Theódór gerði sigurmark Gróttu.

Pétur Theódór gerði sigurmark Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.