19.08.21 - 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Milenkovic skrifar undir hjá Fiorentina (Staðfest) - Ekki til Englands

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nikola Milenkovic hefur framlengt samning sinn við ítalska félagið Fiorentina. Núgildandi samningur gildir fram á sumarið 2023.
Ensk félög hafa sýnt serbneska varnarmanninum mikinn áhuga í sumar. West Ham var sagt hvað næst því að krækja í Milenkovic en Man Utd, Wolves og Tottenham voru einnig sögð hafa áhuga. Juventus var líka sagt horfa til miðvarðarins.

Greint var frá því í gær að Milenkovic væri með nýtt samningstilboð frá Fiorentina í höndunum. Í dag var svo greint frá því að hann hefði framlengt.
Hann verður líklega í byrjunarliðinu þegar Fiorentina mætir Roma á morgun.
Milenkovic er 23 ára og kom til Fiorentina frá Partizan árið 2017. Hann á að baki 28 landsleiki fyrir Serbíu.
Hann verður líklega í byrjunarliðinu þegar Fiorentina mætir Roma á morgun.
Milenkovic er 23 ára og kom til Fiorentina frá Partizan árið 2017. Hann á að baki 28 landsleiki fyrir Serbíu.
#Milenkovic2023
— ACF Fiorentina English (@ACFFiorentinaEN) August 19, 2021
🖊 Official statement 🤝#ForzaViola 💜 #Fiorentinahttps://t.co/47EO8yzBLN