19.08.21 - 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ozan Tufan kominn til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nýliðar ensku úrvalsdeildarinnar í Watford eru búnir að styrkja sig fyrir tímabilið. Watford byrjaði tímabilið vel og vann Aston Villa í fyrstu umferð deildarinnar.
Tyrkneski miðjumaðurinn Ozan Tufan er genginn í raðir félagsins. Hann kemur á láni út tímabilið og Watford hefur svo möguleika á því að kaupa leikmanninn.
Tufan er afar fjölhæfur þar sem hann getur einnig leikið sem bakvörður og kantmaður. Hann er mikilvægur hlekkur í tyrkneska landsliðinu og á 63 leiki að baki.
Tufan er 26 ára gamall og hefur verið í lykilhlutverki hjá stórveldinu Fenerbahce.

🇹🇷 Here we go... pic.twitter.com/0tTCjvgzKw
— Watford Football Club (@WatfordFC) August 19, 2021