Fotbolti.net
19.08.21 - 11:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Roma riftir samningi við Pedro - Semur við Lazio (Staðfest)

Roma riftir samningi við Pedro - Semur við Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Spænski vængmaðurinn Pedro er genginn í raðir Lazio og kemur á frjálsri sölu frá Roma. Pedro átti tvö ár eftir af samningi hjá Roma en báðir aðilar komust að samkomulagi um að best væri að rifta samningnum.

Roma var að leitast eftir því að losna við Pedro af launaskránni og var hann ekki í áformum Jose Mourinho, nýs stjóra félagsins.
Pedro er 34 ára gamall og gekk í raðir Roma frá Chelsea síðasta sumar. Maurizio Sarri, stjóri Lazio, vildi fá Pedro til sín en þeir unnu saman hjá Chelsea.

Pedro fær treyju númer níu hjá Lazio sem endaði í sjötta sæti ítölsku deildarinnar í fyrra. Lazio og Roma eru nágrannalið sem bæði eru staðsett í höfuðborg Ítalíu, Róm.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.