19.08.21 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ward-Prowse skrifar undir fimm ára samning (Staðfest)

James Ward-Prowse.

Mynd: EPA

James Ward-Prowse.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn James Ward-Prowse er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Southampton.
Ward-Prowse, sem er fyrirliði Southampton, var sterklega orðaður við Aston Villa í sumar en hann ætlar að halda tryggð við Dýrlingana og vera þar áfram.
Þessi 26 ára gamli miðjumaður hefur spilað meira en 300 leiki fyrir Southampton. Í þeim hefur hann skorað 33 mörk og þróast í enskan landsliðsmann.
„Ég er líklega glaðasti maður í heimi akkúrat núna," segir þessi öflugi miðjumaður.
Southampton hefur misst öfluga leikmenn í sumar, eins og Danny Ings og Jannik Vestergaard. Ward-Prowse stekkur ekki frá borði.