Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 19. ágúst 2022 09:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikurinn á sunnudag er ekki alveg tilgangslaus
Kvenaboltinn
Blikar eiga leik á sunnudag.
Blikar eiga leik á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik tapaði í gær 4-2 gegn norska stórliðinu Rosenborg í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.

Breiðablik er þar með úr leik en mætir samt Slovácko frá Tékklandi á sunnudaginn. Sá leikur skiptir engu máli varðandi það að komast áfram - Blikar eru úr leik - en UEFA ákveður að setja forkeppnina upp svona.

Leikurinn er samt ekki alveg tilgangslaus.

Það eru nefnilega 'coefficent' stig í húfi og getur sigur hjálpað Bestu deild kvenna að halda áfram tveimur sætum í Meistaradeildinni. Eins og staðan er núna þá fara efstu tvö lið deildarinnar í Meistaradeildina ári hverju. Það er betra en að það fari bara eitt lið í þá keppni.

Þá skiptir þessi leikur líka máli fjárhagslega séð. Sigurliðið - samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net - mun fá rúmlega 700 þúsund krónur í verðlaunafé á meðan tapliðið fær mun lægri upphæð.

Það er því eitthvað undir þó leikurinn sé áfram tilgangslaus að því leyti að Breiðablik mun ekki komast áfram sama hvernig hann endar.

Valur á möguleika á því að komast áfram á næsta stig forkeppninnar eftir sigur í gær. Þær mæta írsku meisturunum í Shelbourne á sunnudaginn í úrslitaleik um að komast í næstu umferð forkeppninnar.
Athugasemdir
banner