Sky Sports greinir frá því að Manchester United sé búið að ná samkomulagi við Real Madrid um kaupverð fyrir brasilíska miðjumanninn Casemiro.
Rauðu djöflarnir munu greiða um 60 milljónir punda, eða 70 milljónir evra, fyrir þennan öfluga landsliðsmann Brasilíu.
Núna heldur Casemiro til Englands til að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning.
Stjórn Man Utd vonast til að hann geti leyst vandamál liðsins sem hefur vantað hágæða miðjumann í langan tíma.
Casemiro er einn af þekktustu miðjumönnum heims og hefur unnið til ógrynni titla í treyju Real Madrid. Hann á tæplega 350 keppnisleiki að baki á átta árum hjá félaginu sem keypti hann frá Sao Paulo í Brasilíu.
Casemiro er 30 ára gamall og verður þetta hæsta kaupverð sögunnar fyrir leikmann sem er kominn yfir þrítugt. Miralem Pjanic var dýrastur þegar hann var keyptur frá Juventus til Barcelona í furðulegum félagsskiptum sem snerust meira um fjárlagareglur UEFA heldur en leikmennina.