Fotbolti.net
19.08.26 - 09:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Baleba nálgast Man Utd - Höfnuðu fyrsta tilboði

Baleba nálgast Man Utd - Höfnuðu fyrsta tilboði
Canon

Mynd: Samsett

Carlos Baleba, miðjumaður Brighton, virðist vera nálgast Manchester United.

David Ornstein, blaðamaður hjá The Athletic, segir að tilboði United hafi verið hafnað í Kamerúnann.

Baleba hefur verið orðaður við United síðustu misseri, Brighton vildi fá svimandi upphæð fyrir Baleba en verðmiðinn virðist vera raunhæfari á þessum tímapunkti.
Baleba er 22 ára og tilboðið hljóðaði samkvæmt Ornstein upp á 60 milljónir punda og 5 milljónir punda til vibótar í árangurstengdum greiðslum. Brighton vill fá hærri upphæð fyrir kappann sem kom frá Lille árið 2023.

Sky Sports segir að Baleba sé undirbúinn að ferðast til Manchester og muni skrifa undir fimm ára samning þegar félögin ná saman.

Casemiro fór frá United í sumar og Manuel Ugarte meiddist illa. Inn hafa komið Andrey Santos og Youri Tielemans inn á miðsvæðið. United verður í Meistaradeildinni í vetur eftir að hafa ekki verið í Evrópukeppni á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.