Fotbolti.net
19.08.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Real Sociedad setur sig í samband við West Ham

Stóð sig vel á HM eftir lánsdvöl í Tyrklandi

Real Sociedad setur sig í samband við West Ham
Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Real Sociedad, sem Orri Steinn Óskarsson leikur fyrir, er að reyna að næla í miðjumanninn Edson Álvarez úr herbúðum West Ham United.
West Ham lánar Alvarez til Fenerbahce (Staðfest)
TENGT EFNI

West Ham lánar Alvarez til Fenerbahce (Staðfest)

Álvarez er 28 ára gamall og á tvö ár eftir af samningi sínum við Hamrana. Hann var ekki í leikmannahópi West Ham sem gerði jafntefli við Burnley í fyrstu umferð Championship tímabilsins eftir að hafa verið í byrjunarliðinu í sigri gegn Portsmouth í fyrstu umferð deildabikarsins.

Miðjumaðurinn var orðaður við endurkomu til Ajax fyrr í sumar en hollenska stórveldið virðist vera hætt við. Sociedad er komið langt á leið í viðræðum sínum við West Ham, sem er talið vilja fá 15 milljónir punda fyrir Álvarez.

Álvarez lék á láni hjá tyrkneska stórveldinu Fenerbahce á síðustu leiktíð en ökklameiðsli settu strik í reikninginn. Hann stóð sig vel sem fyrirliði Mexíkó á HM í sumar og er spenntur fyrir að hefja nýjan kafla á ferlinum.

Mexíkóinn er búinn að biðja stjórnendur West Ham um að vera seldur og gæti reynt fyrir sér í spænska boltanum í vetur.
Real Sociedad setur sig í samband við West Ham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.