Fotbolti.net
19.09.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Birmingham fær Lingard á láni frá Man Utd (Staðfest)

Birmingham fær Lingard á láni frá Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fengið Jesse Lingard á láni frá Manchester United en samningurinn gildir í einn mánuð.

Þessi tvítugi leikmaður getur leikið í öllum stöðum á miðjunni.
Lingard á ennþá eftir að spila sinn fyrsta aðalliðsleik með United en á síðasta tímabili lék hann með Leicester á láni í tvo mánuði.

Birmingham hefur einungis unnið einn leik af fyrstu fimm í Championship deildinni en liðið mætir Sheffield Wednesday á laugardag þar sem Lingard gæti leikið sinn fyrsta leik.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.