Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 16:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
2. deild: Þróttur V. skellti Selfyssingum - Kórdrengir sannfærandi
Frábær sigur Þróttara á Selfossi
Frábær sigur Þróttara á Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikir fóru fram í 2. deild karla í dag. Einum leik var frestað, viðureign Víðis og Kára.

Á Húsavík valtaði topplið Kórdrengja yfir Völsung, 0-6. Þórir Rafn Þórisson skoraði tvö mörk fyrir gestina. Kórdrengir eru á hraðri leið upp í 1. deildina.

Á Selfossi voru heldur betur óvænt úrslit. Gestirnir úr Þrótti voru komnir í 0-4 á 17. mínútu! Hrvoje Tokic minnkaði muninn á 49. mínútu en nær komust Selfyssingar ekki.

Þá sigraði Fjarðabyggð á móti Dalvík/Reyni á Dalvíkurvelli. Lokatölur 1-3 fyrir Fjarðabyggð eftir að gestirnir komust í 0-3.

Kórdrengir eru í topsætinu með 40 stig, sex stigum meira en Þróttur V. sem er í 3. sætinu. Selfoss er í öðru sætinu með 37 stig og Njarðvík er í 4. sætinu með 33 stig. Dalvík/Reynir er í næstneðsta sæti og Völsungur í botnsætinu.

Völsungur 0 - 6 Kórdrengir
0-1 Magnús Þórir Matthíasson ('21)
0-2 Einar Orri Einarsson ('28)
0-3 Albert Brynjar Ingason ('31)
0-4 Þórir Rafn Þórisson ('48)
0-5 Þórir Rafn Þórisson ('74)
0-6 Aaron Robert Spear ('80)

Selfoss 1 - 4 Þróttur V.
0-1 Örn Rúnar Magnússon ('4 )
0-2 Andri Jónasson ('10 )
0-3 Ethan James Alexander Patterson ('12 )
0-4 Hubert Rafal Kotus ('17 )
1-4 Hrvoje Tokic ('49 )

Dalvík/Reynir 1 - 3 Fjarðabyggð
0-1 Filip Marcin Sakaluk ('39)
0-2 Hákon Huldar Hákonarson ('45)
0-3 Jose Antonio Fernandez Martinez ('70)
1-3 Viktor Daði Sævaldsson ('82)


Athugasemdir
banner
banner
banner