Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 19. september 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áfall fyrir Man City: Aguero lengur frá og Laporte ekki klár
Aguero verður ekki með á mánudaginn og óvíst hvenær hann byrjar að spila aftur.
Aguero verður ekki með á mánudaginn og óvíst hvenær hann byrjar að spila aftur.
Mynd: Getty Images
Manchester City verður án þeirra Sergio Aguero og Aymeric Laporte þegar liðið mætir Wolves á Molineux leikvanginum á mánudagskvöld.

Laporte hefur nýhafið æfingar eftir að hafa greinst með Covid-19 veiruna fyrir ekki svo löngu síðan.

Aguero meiddist á hné í sumar og æfir hann einn þessa stundina. Guardiola gaf það í skyn að Aguero gæti verið frá í allt að tvo mánuði í viðbót en sagði þó að Aguero gæti komið fyrr til baka.

Riyad Mahrez er búinn að æfa nokkrum sinnum með öllum hópnum og verður hann klár í bátanna á mánudaginn.

Nathan Ake verður þá væntanlega í byrjunarliðinu hjá City í fjarveru Laporte.
Athugasemdir
banner
banner
banner