Fotbolti.net
19.09.20 - 20:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Fiorentina byrjar á sigri - Roma gerði jafntefli

Ítalía: Fiorentina byrjar á sigri - Roma gerði jafntefli
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn öflugi Gaetano Castrovilli gerði eina mark leiksins er Fiorentina vann verðskuldaðan sigur á Torino í fyrsta leik nýs tímabils í ítalska boltanum.
Federico Chiesa gerði frábærlega að leggja upp sigurmarkið fyrir Castrovilli á 78. mínútu.

Fiorentina var betra liðið frá upphafi til enda og geta gestirnir frá Tórínó þakkað Salvatore Sirigu í markinu fyrir að halda þeim í leiknum.

Cristiano Biraghi kom knettinum í netið fyrir Fiorentina en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Roma heimsótti þá Verona og lauk leiknum með markalausu jafntefli þrátt fyrir góðar marktilraunir á báða bóga.

Henrikh Mkhitaryan og Pedro voru í byrjunarliði Rómverja sem tókst ekki að skora þrátt fyrir 15 marktilraunir.

Verona 0 - 0 Roma

Fiorentina 1 - 0 Torino

1-0 Gaetano Castrovilli ('78)
Ítalía: Fiorentina byrjar á sigri - Roma gerði jafntefli
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.