Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 16:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jota til Liverpool (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Liverpool er búið að tilkynna um kaupin á Diogo Jota frá Wolves. Jota er 23 ára gamall portúgalskur sóknarmaður sem er talinn kosta um 45 milljónir punda.

Liverpool seldi fyrr í dag Ki-Jana Hoever til Wolves í einhvers konar skiptum svo Liverpool greiðir um 30 milljónir fyrir Jota þegar upp er staðið.

Jota skoraði sextán mörk í 67 leikjum með Wolves í úrvalsdeildinni og getur bæði spilað sem fremsti maður eða á kantinum. Á liðinni leiktíð skoraði hann þá níu mörk í fjórtán Evrópudeildarleikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner