Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man City lánar Aro Muric og Moreno til Spánar (Staðfest)
Muric spilar með Girona í vetur.
Muric spilar með Girona í vetur.
Mynd: Getty Images
Manchester City tilkynnti í gær að félagið væri búið að lána markvörðinn Aro [Arijanet] Muric til spænska félagsins Girona út yfristandandi leiktíð.

Muric er landsliðsmaður Kósóvó og hefur leikið fimm leiki fyrir aðallið City. Hann er samningsbundinn þeim ljósbláu út tímabilið 2024. Á síðustu leiktíð var hann að láni hjá Nottigham Forest.

Pablo Moreno fer einnig að láni til Girona. Hann gekk í raðir City frá Juventus í sumar og getur leyst fremstu stöðurnar á vellinum.

Aro verður 22 ára í nóvember og Moreno er átján ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner