19.10.13 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Arnþór Ari í Fram á láni (Staðfest)

Arnþór Ari og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Heimasíða Fram

Arnþór Ari og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Heimasíða Fram
Fram hefur fengið miðjumanninn unga Arnþór Ara Atlason á láni frá Þrótti en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Lánssamningurinn gildir í eitt ár.
Arnþór Ari hefur allan sinn feril leikið með Þrótti en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 70 leiki með félaginu í deild og bikar. Hann hefur verið fastamaður í liði Þróttar frá 18 ára aldri.
Hann hefur auk þess leikið tvo leiki með U19 ára liði Íslands. Arnþór Ari segist mjög sáttur með að vera kominn í Fram.
„Ég er sannfærður um að þetta er rétt skref á mínum ferli. Hér er ég kominn á stað þar sem ég get þroskast sem knattspyrnumaður auk þess sem mér líst afar vel á nýja þjálfarann og þá stefnu Fram að setja meiri ábyrgð á yngri leikmenn. Ég hlakka mikið til að byrja að æfa,\" sagði Arnþór við heimasíðu Fram.
Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram segir afar ánægjulegt að fá Arnþór Ara til liðs við félagið.
„Þetta er ungur og mjög efnilegur strákur en samt með mikla reynslu. Hann getur tekið skrefið upp á við hjá okkur og miðað við hugarfarið hjá honum er ég sannfærður um að hann gerir það,\" sagði Bjarni.
Bjarni hefur lýst því yfir að hann ætli að byggja Framliðið upp á ungum og efnilegum leikmönnum en í gær fékk hann Hafstein Briem til félagsins frá Haukum.