Fotbolti.net
19.10.15 - 17:11
Elvar Geir Magnússon

Guðjón Lýðs gerði þriggja ára samning við Val (Staðfest)

Guðjón Pétur er kominn aftur í Val. Hér er hann í leik með liðinu 2012.

Guðjón Pétur er kominn aftur í Val. Hér er hann í leik með liðinu 2012.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

„Valur er stór klúbbur með mikla sögu og hefð. Maður finnur að það er kominn sami andi og var þegar ég var síðast í félaginu. Ég finn að það er allt til alls í Val,\" segir miðjumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson sem er kominn aftur í Val.

Hann er í stuttu viðtali á heimasvæði Vals á Facebook.

„Það eru margir sigurvegarar í félaginu. Ég er kominn í Val til að láta gott af mér leiða og marka spor í sögu félagsins. Hér vil ég vinna titla, og tel að Valur sé hárrétti staðurinn til að ná því markmiði.\"
Tilkynnt var í síðustu viku að Guðjón væri farinn frá Breiðabliki og fram kom hér á Fótbolta.net á föstudag að hann væri á leið á Hlíðarenda.

Af heimasíðu Vals:
Guðjón Pétur Lýðsson, 28 ára knattspyrnumaður, er kominn aftur til Vals og hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild félagsins.

Gríðarleg ánægja er með endurkomu Guðjóns. Guðjón Pétur lék með Val tímabilin 2011-12 við afar góðan orðstír og skoraði m.a. 8 mörk tímabilið 2011. Guðjón lék með Breiðabliki á síðasta tímabili og var með betri mönnum liðsins.

Guðjón Pétur er gríðarlega hæfileikaríkur knattspyrnumaður og hefur gríðarlegan metnað fyrir hönd félagsins.

Knattspyrnudeild Vals stefnir enn hærra eftir bikarmeistaratitil og skemmtilega spilamennsku Valsliðins á síðustu leiktíð og er Guðjón Pétur mikilvægur hlekkur í góðu Valsliði sem tekur þátt í Evrópukeppninni á komandi leiktíð.
Guðjón ásamt Sigurbirni Hreiðarssyni, aðstoðarþjálfara Vals.

Guðjón ásamt Sigurbirni Hreiðarssyni, aðstoðarþjálfara Vals.

Canon

Mynd: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.