Fotbolti.net
19.10.15 - 13:46
Elvar Geir Magnússon

Hinn afar skrautlegi Evans tekinn við Leeds (Staðfest)

Með fyndinn hatt. Svona var Evans klæddur þegar hann stýrði Rotherham í lokaumferð Championship-deildarinnar síðasta tímabil.

Með fyndinn hatt. Svona var Evans klæddur þegar hann stýrði Rotherham í lokaumferð Championship-deildarinnar síðasta tímabil.

Canon

Mynd: Twitter

Steve Evans hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Leeds United en hann fékk rúllandi samning sem gildir út júní á næsta ári.

Massimo Cellino, eigandi Leeds, er þekktur fyrir að vera duglegur við að skipta um stjóra en Uwe Rösler var rekinn úr stjórastólnum í morgun. Cellino segist vera mjög hrifinn af þeirri ástríðu sem býr í hinum skrautlega Evans.
Evans var stjóri Rotherham þegar landsliðsmaðurinn Kári Árnason lék með liðinu.

„Hann er sérstakur,\" sagði Kári sem vildi ekki opna sig meira varðandi Evans. „Ég held að það sé best fyrir alla sleppa því. Sérstaklega hann.\"

Evans á mörg mjög skrautleg ummæli en þjálfaraaðferðir hans þykja heldur gamaldags.

Tap Leeds gegn Brighton á laugardag þýðir að liðið hefur ekki náð að vinna neinn heimaleik á tímabilinu. Liðið er í 18. sæti Championship-deildarinnar.

Dæmi um ástríðuna hjá Evans:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.