Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 19. október 2021 18:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eiður Ben tekur við Þrótti Vogum (Staðfest)
Lengjudeildin
Eiður er kominn með nýtt starf.
Eiður er kominn með nýtt starf.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Ben Eiríksson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Þróttar Vogum.

„Þróttur Vogum lýsir yfir mikilli ánægju með að fá einn efnilegasta þjálfara landsins í sínar raðir og hlakkar til samstarfsins," segir í tilkynningu frá Þrótti.

Þróttur hefur verið í þjálfaraleit síðan Hermann Hreiðarsson ákvað að halda til Vestmannaeyja og þjálfa uppeldisfélag sitt ÍBV. Hemmi hafði verið þjálfari Þróttar síðasta eitt og hálfa tímabilið eða svo.

Eiður hefur undanfarin ár verið í teymi með Pétri Péturssyni og hafa þeir þjálfað kvennalið Vals. Valur varð Íslandsmeistari 2019 og aftur í ár.

Eiður er fæddur árið 1991 og er uppalinn hjá Fjölni. Áður en hann tók við starfinu hjá Val hafði hann starfað sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fylki og hjá Fjölni sem yngri flokka þjálfari og þjálfari Vængja Júpíters.

Þróttur tryggði sér í sumar sæti í næstefstu deild með því að enda í efsta sæti 2. deildar. Félagið er í fyrsta sinn í næstefstu deild í sögu þess.
Athugasemdir
banner
banner
banner