 
                                                                                        
                        
                                    
                                                    
                
                                                                
                Mist Edvardsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
                
                
                                    Hún gerir samning sem gildir út næsta leiktímabil. Mist hefur verið hjá Val í tíu ár.
Mist var algjörlega frábær í sumar og var valin besti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar af Heimavellinum. Hún var gríðarlega öflug í hjarta varnarinnar hjá Val.
„Það er mikil ánægja að Valur fái að njóta krafta þessa reynslumikla leikmanns á næsta tímabili," segir í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu.
Valur hefur á síðustu dögum endursamið við nokkra leikmenn. Sandra Sigurðardóttir, Lára Kristín Pedersen, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Sólveig Jóhannesdóttir Larsen hafa allar gert nýja samninga.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
    
 
                    
        
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                
