Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. nóvember 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
„Fótboltinn verður ekki samur eftir að ég birti þessar skýrslur"
Romain Molina ætlar að uppljóstra um spillingu í Frakklandi meðal annars
Romain Molina ætlar að uppljóstra um spillingu í Frakklandi meðal annars
Mynd: EPA
Mynd: Guðmundur Karl
Fótboltinn verður ekki samur eftir að franski blaðamaðurinn Romain Molina birtir ítarlegar greinar í mars eða apríl á næsta ári. Hann sagði ýmsar viðbjóðslegar sögur á Spaces á Twitter í gær.

Molina er með virtustu blaðamönnum Frakklands. Hann er skráður til heimilis í Andalúsíu en heimilisfangið sem hann gefur upp er þó ekki til og eru góðar og gildar ástæður fyrir því.

Hann hefur uppljóstrað ýmsu um franska knattspyrnumenn, stjórnarmenn og dómara og nú síðast sagði hann frá meintu ofbeldi Ferland Mendy sem spilar hjá Real Madrid.

Mendy er sagður hafa beitt tvær konur ofbeldi. Þar kemur fram að önnur þeirra þjáist af heilaskaða eftir hann kýldi hana ítrekað áður en hann sparkaði í höfuð hennar.

Molina sérhæfir sig í rannsóknarblaðamennsku og hefur unnið margar mikilvægar og góðar greinar fyrir Guardian og New York Times um spillingu í Afríku og kynferðisbrot hjá hátt settum mönnum innan hreyfingarinnar. Hann mun vinna með Washington Post og ESPN á næstu misserum.

„Þið eruð ekki tilbúin fyrir þær upplýsingar sem ég mun birta í mars eða apríl. Það verður talað um þetta sem fyrir þessa skýrslu og eftir, í fótboltaheminum," sagði Molina á Spaces.

Molina talaði um ógeðfelld teiti hjá frönskum landsliðsmanni, almenna spillingu innan franska fótboltasambandsins, barnaníðshring hjá stærstu akademíunni í Kongó, landsliðsþjálfara sem nauðgaði tveimur 13 ára stúlkum og margt fleira, þó aðeins brot af öllu því sem hann ræddi og á næstu dögum munum við birta fréttir af því sem hann hefur uppljóstrað síðasta sólarhringinn eða svo.

Molina hefur unnið að þessum skýrslum síðustu ár og er ekki langt í að hann birtir þær en hann reiknar með að það verði í mars eða apríl á næsta ári.

Margir atvinnumenn hlustuðu á Molina á Spaces en þar má nefna Ibrahima Konate, Jeremy Doku, Aurelien Tchouameni, Bryan Mbeumo, Mehdi Benati, Dmitri Payet og Yan Valery.
Athugasemdir
banner