Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. nóvember 2021 19:38
Victor Pálsson
Lingard birti athyglisverða mynd á Instagram
Mynd: Getty Images
Það eru auknar líkur á því að Jesse Lingard muni yfirgefa lið Manchester United á næsta ári en hann verður samningslaus í sumar.

Lingard var lánaður til West Ham á síðustu leiktíð og stóð sig virkilega vel - félagið reyndi og reyndi að fá hann aftur í sumarglugganum.

Man Utd og Lingard hafa ekki náð samkomulagi um nýjan samning og er líklegt að hann kveðji árið 2022.

Lingard birti ansi athyglisverða færslu á Instagram síðu sína í dag en þar má sjá hann einmitt í treyju West Ham.

Þetta ýtir sterklega undir þær sögusagnir að Lingard sé á leið aftur til London en hann fær engin tækifæri á Old Trafford þessa dagana.

Myndina má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner