Fotbolti.net
19.11.26 - 11:49
Elvar Geir Magnússon

Kári tjáir sig um miðvarðamál landsliðsins: Spennandi kostir

Stefán Teitur Þórðarson.

Stefán Teitur Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Það er á allra vitorði að breiddin þegar kemur að varnarmönnum fyrir íslenska landsliðið mætti vera betri. Kári Árnason, fyrrum miðvörður íslenska landsliðsins, ræddi málin við Morgunblaðið.

Daníel Leó Grétarsson er lykilmaður í hjarta varnar íslenska liðsins en Kári var spurður að því hvert væri aðal miðvarðapar íslenska liðsins í dag. Hann telur að Stefán Teitur Þórðarson, sem er vanur því að spila framar á vellinum, sé orðinn aðalmiðvörður við hlið Daníels.

„Sverrir Ingi (Ingason]) er með slitið krossband og óvíst hvenær hann snýr aftur. Við höfum verið að lenda í meiðslum í öftustu víglínu og það er hluti af þessu. Arnar virðist vera mjög hrifinn af Stefáni Teiti í vörninni og svo erum við með Guðlaug Victor (Pálsson) og Hörð Björgvin (Magnússon) þarna líka en þeir eru ekki að yngjast neitt. Mín tilfinning er sú að Arnar muni treysta á Stefán Teit í þessari stöðu með Daníel Leó," segir Kári.
Nýja miðvarðaparið sem Arnar þarf að hafa augun á
TENGT EFNI

Nýja miðvarðaparið sem Arnar þarf að hafa augun á

Varnarmenn úr U21 landsliðinu eru þá farnir að banka á dyrnar.

„Svo erum við líka með mjög spennandi kosti í U21-landsliðinu. Þeir Júlíus Mar (Júlíusson) og Davíð Helgi (Aronsson) hafa staðið sig mjög vel þar. Það er vert að horfa til þeirra tveggja og þetta eru leikmenn sem munu klárlega gera tilkall til A-landsliðsins í framtíðinni. Nóel Atli [Arnórsson] er annar kostur líka sem hefur staðið sig mjög vel með Álaborg en ég hef séð minna af honum en þó heyrt að hann sé virkilega góður leikmaður sem gæti líka gert tilkall til liðsins," segir Kári Árnason við Morgunblaðið.

Heimild: Morgunblaðið

Davíð Helgi er 19 ára.

Davíð Helgi er 19 ára.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason.

Kári Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.