Fotbolti.net
19.12.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Almar Daði í Fjarðabyggð (Staðfest)

Almar Daði í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði

Fjarðabyggð sem leikur í 2. deild næsta sumar hefur fengið Almar Daða Jónsson til félagsins frá Leikni Fáskrúðsfirði en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Almar, sem er 20 ára gamall framherji, hefur allan sinn feril leikið með Leikni en hann hefur spilað 79 leiki fyrir félagið og skorað 33 mörk.

Hann var markahæsti leikmaður 3. deildar í sumar með 19 mörk en hann gerði þau í 16 leikjum.

Hann hefur nú gert samning við Fjarðabyggð um að leika með liðinu næsta sumar en ljóst er að þetta kemur til með að styrkja liðið fyrir komandi átök.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.