19.12.13 - 14:02
Elvar Geir Magnússon
Henning Berg tekinn við Legia Varsjá (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Henning Berg, fyrrum varnarmaður Manchester United, er kominn aftur í boltann en hann var kynntur í dag sem nýr þjálfari Legia Varsjá.
Berg hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn með skömm frá Blackburn Rovers 2012 eftir aðeins 57 daga í starfi. Undir stjórn Berg vann Blackburn aðeins einn leik.

Legia Varsjá eru meistarar í Póllandi og eru sem stendur með fimm stiga forystu í deildinni heima. Liðið er þó fallið úr leik í Evrópudeildinni og pólska bikarnum.
Berg skrifaði undir samning sem gildir í tvö og hálft ár.
Sir Alex Ferguson sagði við pólskan fjölmiðil að Berg væri með mikla leiðtogahæfileika og þekkingu um fótbolta.
„Ég tel að hann muni gera góða hluti með Legia og einn daginn muni hann fá tækifæri hjá stóru félagi á Englandi. Hann hefur alla hæfileika til þess. Ég var hneykslaður að sjá hvernig komið var fram við hann hjá Blackburn,\" sagði Ferguson.