19.12.15 - 13:36
Arnar Geir Halldórsson
Hiddink tekur við Chelsea (Staðfest)

Hiddink mættur aftur til Chelsea

Mynd: Getty Images

Hiddink mættur aftur til Chelsea

Mynd: Getty Images
Hollenski knattspyrnustjórinn Guus Hiddink hefur verið ráðinn til starfa hjá Englandsmeisturum Chelsea.
Hiddink mun stýra liðinu út þessa leiktíð en hann tekur við af Jose Mourinho sem var rekinn á dögunum.
Hinn 69 ára gamli Hiddink er þrautreyndur og hefur stýrt liðum á borð við Real Madrid, PSV Eindhoven og Valencia auk þess að hafa stýrt fjölmörgum landsliðum.
Þetta er í annað sinn á ferlinum sem Hiddink gerir stuttan samning við Chelsea en í febrúar 2009 var hann ráðinn til að stýra liðinu út tímabilið eftir að Luiz Felipe Scolari var vikið frá störfum.
Hiddink stóð sig vel hjá Chelsea í þann stutta tíma og stýrði liðinu til sigurs í enska bikarnum.
Steve Holland og Eddie Newton munu stýra Chelsea liðinu í dag gegn Sunderland og verða svo aðstoðarmenn Hiddink það sem eftir lifir tímabils.

BREAKING: @ChelseaFC confirm Guus Hiddink has been appointed first-team manager until the end of the season. #SSNHQ https://t.co/W89pcabIIH
— Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) December 19, 2015