19.12.15 - 10:00
Arnar Geir Halldórsson
Marco Fabian til Frankfurt (Staðfest)

Fabian fagnar marki með Mexíkó

Mynd: Getty Images

Fabian fagnar marki með Mexíkó

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Eintracht Frankfurt hefur gengið frá kaupum á mexíkóska landsliðsmanninum Marco Fabian.
Þetta staðfestir fyrrum félag Fabian, mexíkóska félagið Chivas Guadalajara en kappinn verður löglegur með þýska liðinu þegar Bundesligan fer aftur af stað eftir vetrarfrí.
Fabian er 26 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur skorað sex mörk í 25 landsleikjum fyrir Mexíkó.
Hann gerir þriggja ára samning við Frankfurt sem er einu sæti fyrir ofan fallsætin með fjórtán stig eftir sextán leiki.