Fotbolti.net
19.12.15 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Olgeir og Stubbur í Völsung (Staðfest)

Verður áfram í grænu

Verður áfram í grænu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir Sigurgeirsson og Steinþór Már Auðunsson munu leika með liði Völsungs í 2.deildinni næsta sumar.
Olgeir kemur til Völsungs frá Pepsi deildarliði Breiðabliks. Hann er goðsögn hjá Kópavogsliðinu eftir að hafa leikið yfir 200 leiki fyrir félagið á þrettán ára ferli sínum í Breiðabliki.

Hann hugðist leggja skóna á hilluna eftir síðasta sumar en hefur nú ákveðið að taka í það minnsta eitt tímabil í viðbót undir stjórn Páls Viðars Gíslasonar á Húsavík.

Á sama tíma var tilkynnt um endurkomu markvarðarins Steinþórs Más, sem jafnan er kallaður Stubbur.

Stubbur þekkir til á Húsavík en hann lék með Völsungi áður en hann færði sig til Dalvíkur/Reynis og síðar Þórs, þar sem hann lék á síðustu leiktíð.

Völsungar munu eins og áður segir leika í 2.deild næsta sumar eftir að hafa náð 2.sætinu í 3.deild á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.