Fotbolti.net
19.12.17 - 11:38
Elvar Geir Magnússon

Telur að Mane sé öfundsjúkur út í Salah

Er Mane pirraður yfir því að Salah sé í sviðsljósinu.

Er Mane pirraður yfir því að Salah sé í sviðsljósinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Sparkspekingurinn Ian Wright segist lesa það í hegðun Sadio Mane að hann sé öfundsjúkur út í liðsfélaga sinn hjá Liverpool, Mohamed Salah.

Hann er ekki einn á þessari skoðun en <a href=\"http://fotbolti.net/news/18-12-2017/b-innkastid-b-gylfagledi-og-urvalslid-innkastsins\" target=\"_blank\">rætt var um málið í Innkastinu</a> sem kom á Fótbolta.net í gær.
Wright segir að Mane virðist vera pirraður á meðan Salah baðar sig í athyglinni og fangar flesta fyrirsagnirnar. Þá eru þeir í beinni samkeppni um sæti í liðinu.

Mane var heitasti leikmaður Liverpool á síðasta tímabili.

„Munið þið þegar Mane fór á Afríkumótið og allir töluðu um að það væri ekki hægt að fylla hans skarð? Nú eru þeir komnir með Salah og Mane er á bekknum,\" sagði Wright í umræðuþætti hjá BBC.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verið að gera margar breytingar á liði sínu milli leikja. Í sigrinum gegn Bournemouth var það hlutskipti Mane að fylgjast með frá bekknum á meðan Salah var meðal markaskorara í 4-0 sigri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.