Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. desember 2018 13:44
Elvar Geir Magnússon
Landsliðshópurinn sem fer til Katar - Skemmtileg blanda
Icelandair
Kári Árnason (á mynd) og Birkir Már Sævarsson eru langreyndustu landsliðsmenn hópsins.
Kári Árnason (á mynd) og Birkir Már Sævarsson eru langreyndustu landsliðsmenn hópsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Kristján Ólafsson er meðal sjö leikmanna úr Pepsi-deildinni í hópnum.
Davíð Kristján Ólafsson er meðal sjö leikmanna úr Pepsi-deildinni í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erik Hamren landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hópinn fyrir janúarverkefnið, vináttulandsleiki í Katar. Leikið verður gegn Svíþjóð 11. janúar og gegn Kúveit 15. janúar.

A landslið karla hefur síðustu árin leikið vináttuleiki í janúar. Þau verkefni eru utan alþjóðlegra leikdaga og eru leikmennirnir sem taka þátt fyrir Íslands hönd því flestir frá félagsliðum á Norðurlöndunum og Íslandi, en þó ekki allir.

Í þessum verkefnum gefst leikmönnum sem jafnan eru utan leikmannahópsins á alþjóðlegu leikdögunum, í mótsleikjum, því tækifæri til að sýna sig og sanna, enda fer leikdögum fyrir vináttulandsleiki fækkandi.

Síðustu ár hefur landsliðið leikið í Indónesíu, Kína, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Bandaríkjunum, þar sem fjölmargir leikmenn hafa fengið tækifæri og þannig öðlast dýrmæta reynslu.

„Við erum spenntir fyrir því að spila gegn erfiðum og áhugaverðum andstæðingum sem spila mismunandi gerð af knattspyrnu. Hópurinn hjá okkur er blanda af leikmönnum sem hefur mikla reynslu hjá okkur ásamt þeim sem hafa lítið komið við sögu. Það verður því gott að æfa við frábærar aðstæður," segir Erik Hamren við vefsíðu KSÍ.

Hópinn má sjá hér að neðan en sjö leikmenn eru úr Pepsi-deildinni.

Hópurinn:

Markmenn
Ingvar Jónsson - Viborg
Frederik Schram - Roskilde
Anton Ari Einarsson - Valur

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson - Valur
Kári Árnason - Genclerbirligi
Hjörtur Hermannsson - Bröndby
Böðvar Böðvarsson - Jagiellonia
Adam Örn Arnarson - Álasund
Eiður Aron Sigurbjörnsson - Valur*
Davíð Kristján Ólafsson - Breiðablik*
Axel Óskar Andrésson - Viking*

Miðjumenn:
Arnór Smárason - Lilleström
Eggert Gunnþór Jónsson - SönderjyskE
Samúel Kári Friðjónsson - Valerenga
Guðmundur Þórarinsson - Norrköping
Aron Elís Þrándarson - Álasund
Hilmar Árni Halldórsson - Stjarnan
Jón Dagur Þorsteinsson - Vendsyssel
Alex Þór Hauksson - Stjarnan*
Willum Þór Willumsson - Breiðablik*

Sóknarmenn
Óttar Magnús Karlsson - Mjallby
Kristján Flóki Finnbogason - Start
Andri Rúnar Bjarnason - Helsingborg

*Leikmenn sem eiga engan A-landsleik.

Birkir Már Sævarsson (86 landsleikir) og Kári Árnason (73) eru langreyndustu leikmennirnir í hópnum. Þar á eftir koma Arnór Smárason (24) og Eggert Gunnþór Jónsson (20). Enginn annar leikmaður nær tug í A-landsleikjafjölda.
Athugasemdir
banner
banner
banner