Fotbolti.net
20.01.13 - 17:10
Hafliði Breiðfjörð

Andri Ólafsson í KR (Staðfest)

Andri ásamt Rúnari Kristinssyni þjálfara KR.

Andri ásamt Rúnari Kristinssyni þjálfara KR.

Canon

Mynd: Vefur KR

KR staðfesti á vef sínum í dag að Andri Ólafsson sé genginn til liðs við félagið frá ÍBV en hann skrifaði undir þriggja ára samning við bikarmeistarana. Andri hafði verið orðaður við Val og FH en valdi að fara til KR.
Andri hefur alla tíð leikið með ÍBV og hefur skoraði 27 mörk í 189 deildar- og bikarleikjum.

Hann hefur einnig skorað eitt mark í fimm Evrópuleikjum með ÍBV og leikið 13 leiki með yngri landsliðum.

Andri hefur oftast leikið í vörn ÍBV og sjá þjálfarar KR hann fyrir sér sem miðvörð, en hann hefur einnig leikið á miðjunni og í sókninni.

Samningur Andra gildir út leiktíðina 2015 en ljóst er að hann mun styrkja leikmannahóp KR mikið.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.