20.01.13 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Djibril Cisse kominn til Al Gharafa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Djibril Cisse, franskur sóknarmaður QPR, er kominn til Al Gharafa í Katar á lánssamning út tímabilið.
Cisse er búinn að skora 4 mörk í 21 leik fyrir QPR á tímabilinu og er alveg dottinn úr liðinu eftir komu Loic Remy til félagsins.

Remy skoraði sitt fyrsta mark fyrir QPR á laugardaginn þegar liðið gerði jafntefli við West Ham, en Jay Bothroyd og Junior Hoilett voru valdir á varamannabekk QPR og Cisse skilinn eftir heima.
,,Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum QPR og fyrirgefið að ég spilaði ekki jafn vel og á síðasta tímabili,\" skrifaði Cisse á Twitter.
,,Takk fyrir allan stuðninginn og ég efa ekki að við höldum okkur uppi.\"