20.01.13 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Emil Ásmundsson til Brighton & Hove Albion (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Emil Ásmundsson, leikmaður Fylkis, hefur gengið til liðs við enska félagið Brighton & Hove Albion.
Emil skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið en Morgunblaðið greinir frá þessu.

Eins og Fótbolti.net greindi frá á dögunum þá heillaði Emil forráðamenn Brighton þegar hann var á reynslu hjá félaginu í nóvember.
Emil, sem er miðjumaður, er fæddur árið 1995 en hann hefur leikið með Fylki allan sinn feril.
Síðastliðið sumar skoraði Emil eitt mark í sex leikjum í Pepsi-deildinni. Hann á einnig þrettán leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands og einn leik með U19 ára liðinu.

Heimild: Heimasíða Morgunblaðsins