20.01.14 - 07:23
Hafliði Breiðfjörð
Bojana, Júlíana og þrjár aðrar í KR (Staðfest)

Sara, Guðný, Bojana og Guðrún eftir 2-0 sigur KR á Þrótti í Reykjavíkurmótinu í gær.

Mynd: Vefur KR

Kvennalið KR hefur fengið nokkurn liðsstyrk fyrir komandi leiktíð í 1. deild kvenna en Bojana Besic fyrverandi leikmaður Þórs/KA er gengin í raðir félagsins og svo hefur Júlíana Einarsdóttir tekið fram skóna að nýju.
Þetta kemur fram á vef KR en þar kemur einnig fram að KR hefur einnig fengið til liðs við sig Söru Lizzy Chontosh frá Fram og þær Guðný Þóru Guðnadóttur og Guðrúnu Jenný Ágústsdóttur frá Tindastóli.
Þá er Sigrún Birta Kristinsdóttir aftur komin í gang eftir árs fjarveru vegna meiðsla og Guðlaug Jónsdóttir fyrrverandi landsliðskona Íslands hefur verið ráði liðsstjóri félagsins.
Bojana lék með Þór/KA í fimm ár og síðan Völsungi í fyrra. Hún skoraði 10 mörk fyrir Þór/KA í 78 leikjum í keppnum á vegum KSÍ og sjö leiki með Völsungi í 1. deildinni í fyrra. Bojana hefur yfirumsjón með þjálfun yngri flokka kvenna hjá KR.
Guðný og Guðrún fengu leikheimild með KR í dag. Þær hafa leikið með Tindastóli; Guðrún lék fyrst með mfl. Tindastóls árið 2007 og Guðný árið 2009. Guðný skoraði fjögur mörk í 73 deildar- og bikarleikjum með Tindastóli en Guðrún skoraði fjögur mörk í 50 leikjum.
Sara lék með HK í yngri flokkunum og með mfl. Fram í þrjú ár. Sara skoraði sex mörk í 42 deildar- og bikarleikjum með Fram.

Heimild: Vefur KR